flugfréttir

Spirit Airlines pantar 100 þotur

- Samkomulag um 100 Airbus neo-þotur með kauprétt á 50 til viðbótar

24. október 2019

|

Frétt skrifuð kl. 10:44

Airbus A319 þota Spirit Airlines

Bandaríska lágfargjaldafélagið Spirit Airlines hefur tilkynnt að félagið hafi gert samkomulag við Airbus um risapöntun í allt að 100 farþegaþotur.

Félagið segir að pöntunin samastandi af öllum tegundum af neo-þotum úr A320neo-fjölskyldunni og er því um að ræða blöndu af A320neo, A321neo og A319neo þotum.

Samkomulegið felur einnig í sér kauprétt á 50 þotum til viðbótar og myndi Spirit Airlines því panta allt að 150 þotur ef félagið nýtir sér kaupréttinn.

Spirit Airlines er 7. stærsta flugfélag Bandaríkjanna og flýgur félagið til 76 áfangastaða í Bandaríkjunum, Karíbahafi og til Suður-Ameríku en félagið hefur bækistöðvar í Atlantic City, Chicago, Dallas, Detroit, Fort Lauderdale, Las Vegas og í Orlando.

Spirit Airlines hefur í dag 138 Airbus-þotur í flotanum

Spirit Airlines hefur 138 þotur í flotanum sem allar eru af gerðinni Airbus en flotinn samanstendur af Airbus A319, A320, A321 þotum auk þess sem félagið hefur A320neo þotur.

Ted Christie, framkvæmdarstjóri Spirit Airlines, segir að nýju vélarnar munu styrkja leiðarkerfi félagsins með nýjum áfangastöðum en afhendingar gætu staðið yfir til ársins 2027.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga