flugfréttir
Gera ekki ráð fyrir 737 MAX fyrr en í fyrsta lagi í mars
- Icelandair uppfærir flugáætlun sína varðandi Boeing 737 MAX þoturnar
TF-ICU („Dyrhólaey“) í flugtaki á flugvellinum í Manchester
Icelandair hefur uppfært flugáætlun sína er varðar Boeing 737 MAX þoturnar og gerir félagið ekki ráð fyrir þeim í leiðarkerfinu fyrr en í fyrsta lagi í mars.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá Icelandair Group kemur fram að félagið geri ekki ráð
fyrir 737 MAX vélunum í rekstri í janúar og febrúar.
Fram kemur að þessi breyting mun hafa tiltölulega lítil áhrif á leiðarkerfið og áætlunarflug
félagsins á fyrstu tveimur mánuðum ársins.
Þá segir að Icelandair eigi í áframhaldandi viðræðum við Boeing vegna greiðslu á bótum
vegna þess skaða sem kyrrsetning vélanna hefur á afkomu félagsins.
Icelandair mun halda áfram að fylgjast með þróun mála hjá flugmálayfirvöldum erlendis
varðandi kyrrsetningu Boeing 737 MAX en unnið er að því að koma vélunum aftur í loftið
bæði vestanhafs og í Evrópu en það mun þó taka einhvern tíma til viðbótar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.