flugfréttir

Norwegian sagt ætla að panta Sukhoi Superjet þotur

- Fá í staðinn leyfi frá rússneskum stjórnvöldum til þess að fljúga yfir Síberíu

25. október 2019

|

Frétt skrifuð kl. 11:18

Nokkrir rússneskir fjölmiðlar hafa greint frá því í morgun að Norwegian hafi gert samkomulag við Sukhoi-verksmiðjurnar um flugvélakaup

Sagt er að Norwegian eigi í viðræðum við rússneska flugvélaframleiðandann Sukhoi um möguleg flugvélakaup.

Rússneskir fjölmiðlar hafa greint frá þessu í morgun og einnig norski flugfréttavefurinn hangar.no og eru nokkrir fjölmiðlar sem segja að Norwegian sé í viðræðum vegna samkomulags við Sukhoi um kaup á þotum.

Ef af kaupunum verður gæti það opnað leið fyrir Norwegian til þess að fá leyfi frá rússneskum stjórnvöldum til þess að fljúga yfir Síberíu á leið til áfangastaða í Asíu.

Flugvélasamsteypan United Aircraft Corporation, móðurfélag Sukhoi, leitar í örvæntingu eftir nýjum viðskiptavinum til að panta farþegaþotur frá Sukhoi þar sem verksmiðjurnar eru langt frá því að ná því sölutakmarki sem framleiðandinn hafði sett sér fyrir nokkrum árum síðan.

30 Sukhoi-þotur í flota Norwegian og 10 til Norwegian Air Argentina

Rússneska fréttastofan RBC greinir frá því að Norwegian hafi í morgun undirritað samkomulag um kaup á 40 þotum af gerðinni Sukhoi Superjet SSJ100 en Norwegian segir í samtali við aðra fréttastofu að þeir hafi átt fund með Sukhoi-verksmiðjunum en engin samningur hafi enn verið gerður.

Samkvæmt frétt í rússneskum fjölmiðli segir að Norwegian mun taka á leigu 10 Sukhoi Superjet SSJ100 þotur fyrir argentínska dótturfélagið Norwegian Air Argentina á meðan hinar 30 þoturnar fara til Norwegian í Evrópu.

Í staðinn mun Norwegian fá leyfi til þess að fljúga í gegnum rússneska lofthelgi yfir Síberíu og það með afslætti af flugleiðsögugjöldum og er um að ræða leiðir sem tengja Evrópu við Kína, Japan, Suður-Kóreu, Indland og Filippseyjar.

Þær flugleiðir eru stystu leiðirnar frá áfangastöðum í Asíu til Evrópu en flugfélag sem hefur ekki tilskilin leyfi frá rússneskum stjórnvöldum þarf annars að leggja á sig krókaleiðir sem lengir flugleiðina með hærri eldsneytiskostnaði.

Fyrir 4 til 5 tíma flug gæti það verið allt að 10 milljónum króna dýrara á hvert flug í stað þess að fljúga beint yfir Rússland.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga