flugfréttir
Tvö ný flugfélög í Sameinuðu arabísku furstadæmunum
Með flugfélögunum tveimur verða sex flugfélög sem munu sinna áætlunarflugi til og frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum undir flugrekstarleyfi frá landinu
Tvö ný flugfélög munu líta dagsins ljós í Sameinuðu arabísku furstadæmunum á næstunni ef áætlanir um stofnun félaganna ganga eftir.
Í seinustu viku lýsti Air Arabia og Etihad Aviaiton Group því yfir að félögin væru að stofna
nýtt lágfargjaldafélag sem mun nefnast Air Arabia Abu Dhabi og mun félagið verða fimmta
flugfélagið í landinu á aftir Emirates, Etihad, flydubai og Air Arabia.
Félagið mun hafa höfuðstöðvar á flugvellinum í Abu Dhabi og mun félagið bjóða upp á
lág fargjöld til áfangastaða í Miðausturlöndum og fljúga einnig þeim farþegum til Abu Dhabi sem
eiga bókað tengiflug áfram út í heim með Etihad Airways.
Hitt er nýtt dótturfélag SpiceJet á Indlandi sem stefnir á að stofna flugfélag sem verður með
höfuðstöðvar á flugvellinum í borginni Ras al-Khaimah sem staðsett er í um 180 kílómetra
fjarlægð austur af Abu Dhabi.
Það félag verður einnig lágfargjaldarfélag og hafa forsvarsmenn félagsins undirritað samning
um aðstöðu á RAK International flugvellinum um fyrirhugað flug milli borgarinnar og Nýju-Delí
á Indlandi frá og með desember á þessu ári.
Það flugfélag verður sjötta flugfélagið til þess að fljúga undir flugrekstarleyfi frá Sameinuðu
arabísku furstadæmunum en ekki kemur fram hvað það flugfélag mun heita.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.