flugfréttir
SAS hættir með Boeing 737-600
- Síðasta flugið með 737-600 verður frá Stokkhólmi til Oslóar
Boeing 737-600 þota SAS í lendingu á Mallorca
SAS stefnir á að kveðja Boeing 737-600 þotuna í næsta mánuði eftir 21 ár í rekstri en síðasta áætlunarflug félagsins með þessari flugvélategund er áætlað þann 30. nóvember.
Síðasta flug SAS með Boeing 737-600 verður frá Stokkhólmi til Oslóar en félagið
byrjaði með 737-600 tegundina árið 1998 og var vélin fyrst notuð í flugi til
Amsterdam, Brussel, Helsinki, Oslóar og til Parísar.
SAS hefur aðeins eina Boeing 737-600 þotu eftir í flotanum sem ber heitið „Geirmund Viking“
en hún var afhent félaginu í apríl árið 1999 og hefur verið traustur vinnuhestur allar götur síðan.
Tiltölulega fá flugfélög hafa Boeing 737-600 í flota sínum í dag en meðal flugfélaga sem eru
enn að fljúga þeim eru WestJet í Kanada, Tunisair og Air Algérie.
SAS var fyrsta flugfélagið til þess að fá Boeing 737-600 afhenta en alls voru 69 eintök
framleidd hjá Boeing af þessari tegund.
Boeing 737-600 er stysta 737-þotan sem Boeing framleiddi en hún er 31,3 meter á lengd
eða meira en 8 metrum styttri en Boeing 737-800 þotan.
SAS hefur haft Boeing 737-600 þoturnar í 21 ár í flotanum
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.