flugfréttir

Rannsaka starfsemi Silverstone Air í kjölfar fjölda atvika

29. október 2019

|

Frétt skrifuð kl. 16:39

Ein af de Havilland DCH-8-300 flugvélum í flota Silverstone Air Service

Flugmálayfirvöld í Kenýa hafa hafið rannsókn á starfsemi flugfélagsins Silverstone Air Service í kjölfar fjölda atvika sem hafa átt sér stað hjá félaginu í þessum mánuði.

Á dögunum eyðilagðist Fokker 50 flugvél hjá félaginu sem rataði í íslenska fjölmiðla þar sem um var að ræða eina af Fokker-vélunum sem voru um árabil í notkun hjá Flugfélagi Íslands en sú vél fór út af braut í flugtaki í Nairobi þann 11. október sl.

Þá skemmdist annar Fokker hjá félaginu sl. sunnudag eftir að vélinni var ekið of nálægt Super King Air flugvél frá East African Air með þeim afleiðingum að vinstri vængendi vélarinnar rakst í stél vélarinnar og olli skemmdum á hliðarstýri.

Í gær losnaði hjól af hjólastelli í flugtaki hjá félaginu

Næsta dag, 28. október, losnaði annað hjólið af hægra hjólastelli á de Havilland Canada DHC-8-300 flugvél hjá Silverstone Air Service er vélin var í flugtaki á flugvellinum í bænum Lodwar.

Þann 11. október fór Fokker 50 flugvél út af braut í flugtaki í Nairobi en sú vél var í mörg ár í flota Flugfélags Íslands

Flugmálayfirvöld í Kenýa segja að þau sé vel meðvituð um tíð atvik hjá flugfélaginu og kemur fram að verið sé að gera úttekt á rekstri félagsins og skoða hvort að vinnubrögð og starfshættir séu í samræmi við kröfur flugmálayfirvalda.

Síðastliðinn sunnudag rakst Fokker 50 flugvél með vænenda utan í stél á Super King Air flugvél á flugvellinum í Nairobi







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga