flugfréttir

Gæti tekið 5 mánuði að koma öllum MAX-vélunum í loftið

31. október 2019

|

Frétt skrifuð kl. 17:02

Kyrrsettar Boeing 737 MAX þotur Southwest Airlines

Bandaríska flugfélagið Southwest Airlines segir að það muni taka að minnsta kosti 5 mánuði að koma öllum Boeing 737 MAX þotum félagsins í fulla notkun í áætlunarflugi að nýju eftir að kyrrsetningu vélanna verður aflétt.

Þetta segir Mike Van de Ven, rekstrarstjóri Southwest Airlines, en hann tekur fram að 30 til 40 dagar fari í að koma uppfærslum fyrir í þoturnar, endurskrifa flughandbækur og þjálfa flugmenn að nýju á vélarnar.

Þá er talið að um 2 til 3 mánuðir til viðbótar fari í að koma öllum vélunum í fulla notkun en félagið hafði tekið við 34 Boeing 737 MAX þotum áður en vélarnar voru kyrrsettar vestanhafs en félagið hefði átt að vera komið með 41 þotu til viðbótar í flotann fyrir lok þessa árs.

Southwest hefði því undir venjulegum kringumstæðum átt að vera með 75 Boeing 737 MAX þotur fyrir áramót og áætlar félagið að geta komið um 5 til 10 þotum í notkun á viku og verða því allar þoturnar komnar í notkun um sumarið árið 2020.

Southwest telur að félagið hafi nú þegar tapað um 54 milljörðum króna af kyrrsetningunni en félagið pantaði á sínum tíma 30 þotur af gerðinni Boeing 737 MAX 7 og 119 af gerðinni Boeing 737 MAX 8.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga