flugfréttir

Nýtt íslenskt flugfélag heitir Play

- Byrja með tvær Airbus A320 þotur en stefna á sex þotur fyrir næsta vor

5. nóvember 2019

|

Frétt skrifuð kl. 12:49

Flugvélar Play verða af gerðinni Airbus A320 og mun félagið byrja í vetur með tvær slíkar þotur

Forsvarsmenn nýs íslensks flugfélags kynntu rétt fyrir hádegi í dag fyrirhugaða starfsemi á félaginu sem hefur fengið nafnið „Play“ og er um að ræða nýtt íslenskt lágfargjaldaflugfélag.

Starfshópurinn sem stendur á bakvið félagið hafði fyrr á þessu ári lýst því yfir að stofnun nýs flugfélags væri í farvatninu undir vinnuheitinu WAB sem stóð fyrir „We are back“ og kom hópurinn saman fljótlega eftir fall WOW air.

Fjögurra manna hópur kynnti áform flugfélagsins Play á blaðamannafundi sem fram fór í Perlunni en að félaginu standa Arnar Már Magnússon sem er forstjóri félagsins, Þóroddur Ari Þóroddsson, Bogi Guðmundsson og Sveinn Ingi Steinþórsson sem verður fjármálastjóri félagsins.

Flugkostur félagsins verða vélar af gerðinni Airbus A320 og mun félagið leigja tvær slíkar vélar til að byrja með en stefnt er á að vélarnar verði orðnar sex fyrir vorið 2020 og allt að 10 þotur innan þriggja ára.

Merki flugfélagsins Play

Fram kemur að félagið sé búið að tryggja sér tvær þotur sem teknar verða í notkun fyrst um sinn en hinar fjórar bætast við með vorinu.

Þá kemur fram að flugrekstarleyfi félagsins verði gefið út á næstunni og verði opnað fyrir bókanir síðar í nóvember en Play ætlar einnig að gefa 1.000 flugmiða sem viðskiptavinir geta freistað þess að næla sér í á vefsíðunni flyplay.com

Verið er að leggja lokahönd á leiðarkerfi félagsins og segja forsvarsmenn félagsins að að bæði verði flogið til Norður-Ameríku og Evrópu en byrjað verði á því að fljúga til sex áfangastaða í Evrópu og einnig mögulega til sólarlandastaða.

Fram kemur að búið sé að fjármagna rekstur félagsins til lengri tíma og sé þeirri undirbúningshlið lokið en Arnar segir að það hafi verið gert í samvinnu við breskan fjárfestingarsjóð sem á 80% hlut í félaginu á móti íslenskum aðilum sem eiga 20 prósenta hlut.

Þetta er í fyrsta skipti í 8 ár sem að tilkynnt er um stofnun nýs flugfélags á Íslandi en WOW air var einnig stofnað í nóvember sem var árið 2011 og var þá tilkynnt um nafn félagsins.

Rauður verður hinsvegar aðaleinkennislitir Play sem kynnti í morgun einnig merki félagsins sem mun prýða flugvélar félagsins en Arnar Már segir að rauður tákni bæði ástríðuna sem liggur að baki félaginu og vísar líka til eldfjallaeyjunnar Íslands.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga