flugfréttir
Miklar líkur á að KLM velji Boeing 737 MAX
- Hafa yfir 50 Boeing 737 þotur sem þarf að endurnýja á næstu árum
Boeing 737-700 þota KLM Royal Dutch Airlines
Miklar líkur eru á því að Boeing 737 MAX þoturnar verði fyrir valinu hjá hollenska flugfélaginu KLM Royal Dutch Airlines er kemur að endurnýjun á þeim flugflota sem félagið notar í styttri flugleiðum innan Evrópu.
Þetta kom fram á fundi fjárfesta hjá móðurfélaginu Air France-KLM þar sem rætt var um flotastefnu
KLM og Air France en Ben Smith, framkvæmdarstjóri móðurfélagsins, sagði að
Boeing 737 MAX verði að öllum líkindum fyrir valinu.
KLM hefur í dag 51 þotur af gerðinni Boeing 737-800, 737-700 og Boeing 737-700 en meðalaldur
Boeing 737-800 vélanna eru 13 ár á meðan margar 737-900 þotur er að nálgast 19 ára aldurinn.
KLM segist viss um að Boeing 737 MAX verði mjög örugg farþegaþota þegar hún mun hefja sig
á loft á ný og myndi hún henta félaginu vel til þess að leysa eldri Boeing 737 þotur af hólmi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.