flugfréttir
Viðbúnaðarástand á Schiphol vegna gruns um flugrán
- Flugmaður á Airbus A330 sló óvart inn kóðann 7500
Flugturninn á Schiphol-flugvellinum í Amsterdam
Viðbúnaðarástand skapaðist tímabundið í gærkvöldi á Schiphol-flugvellinum í Amstedam er flugmaður í stjórnklefa á Airbus A330-200 breiðþotu hjá Air Europa gaf óvart til kynna að flugvélinni hefði verið rænt.
Hollenska herlögreglan var ræst út sem fóru um borð til að rannsaka „grunsamlegt“
ástand en fljótlega kom í ljós að um mistök var að ræða og var ástandinu aflétt.
Í ljós kom að annar flugmannanna hafði óvart sett inn kóðann „7500“ í ratsjársvarann sem er alþjóðlegt merki sem táknar að flugvél hafi verið rænt.
Airbus A330 breiðþotan á Schiphol-flugvellinum í gærkvöldi
„Það gerðist ekki neitt og allir farþegarnir voru í öruggum höndum“, segir í yfirlýsingu
frá Air Europa sem tekur fram að um mistök hafi verið að ræða.
Verið var að undirbúa flugvélina fyrir brottför til Madrídar þegar merkið barst frá vélinni
en flugvallaryfirvöld lokuðu tímabundið D-álmu flugstöðvarinnar af varúðarástæðum og
var flugstöðin rýmd auk þess sem að lestarstöðinni á Schiphol-flugvellinum var lokað.
Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands, sagði samstarfsmönnum sínum á hollenska þinginu
að hann gæti þurft að bregða sér frá vegna einvers ástands sem hefði komið upp á flugvellinum.
Fjölmennt lið lögreglu, sérsveitarmanna, herlögreglu og sjúkrabíla var ræst út vegna atviksins
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.