flugfréttir
GE9x-hreyfill skemmdist í flutningi í harkalegri lendingu
Antonov An-124 flugvél Volga-Dnepr lenti það harkalega á Paine Field í Seattle að GE9x hreyfill, sem vélin var að flytja fyrir Boeing, varð fyrir skemmdum
Annar af tveimur GE9x hreyflunum, sem á að knýja áfram fyrstu Boeing 777X tilraunaþotuna, skemmdist í flutningi þegar verið var að ferja hann til Seattle á dögunum.
Fyrsti hreyfillinn skemmdist í harðri lendingu á Paine Field flugvellinum við verksmiðjur Boeing í Everett þegar vélin lenti með hreyfilinn í síðasta
mánuði.
Samkvæmt fréttum var hreyfillinn ferjaður með Antonov-fraktflugvél frá Volga-Dnepr Airlines
sem hefur annast fraktflug fyrir Boeing á óvenju stórum íhlutum.
Volga-Dnepr Airlines sótti þann 4. nóvember um sérstakt leyfi til þess að fljúga með hreyfilinn til Peebles í Ohio þar sem framkvæma átti skoðun
á honum vegna atviksins en síðar var ákveðið að sleppa því þar sem í ljós kom að það er hægt
að gera við skemmdirnar á honum í Everett.
Boeing gerir ekki ráð fyrir að þetta óhapp muni seinka Boeing 777X verkefninu eitthvað frekar
en tvisvar hefur orðið seinkun á prófunum á vélinni sem er nú þegar á eftir áætlun.
Gert er ráð fyrir að fyrsta Boeing 777X tilraunaflugvélin muni fljúga sitt fyrsta flug á næsta ári.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.