flugfréttir
Fresta áætlunum um Boeing 737 MAX fram í mars árið 2020
Kyrrsettar Boeing 737 MAX þotur í flota American Airlines
Tvö bandarísk flugfélög, American Airlines og Southwest Airlines, hafa bæði uppfært áætlanir sínar er varðar Boeing 737 MAX þoturnar og gera félögin ekki ráð fyrir að fljúga þeim fyrr en í fyrsta lagi í byrjun mars árið 2020.
Flugfélög, sem hafa Boeing 737 MAX í flota sínum, hafa nokkrum sinnum uppfært leiðarkerfisáætlanir í samræmi við framgang mála er varðar kyrrsetningu vélanna og hefur notkun
þeirra verið frestað reglulega.
American Airlines gerir ekki ráð fyrir að fljúga Boeing 737 MAX fyrr en þann 5. mars 2020
og Southwest Airlines framlengir sínum áætlunum til 6. mars 2020 en bæði félögin höfðu þar
á undan séð fram á að mögulega geta flogið vélunum um miðjan janúar.
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) segja að það geti tekið allt að 30 daga fyrir flugfélög að undirbúa
vélarnar fyrir fyrstu áætlunarflugin eftir að kyrrsetningu verður aflétt og enn lengur fyrir félögin
að vera komin með allan flotann aftur í umferð sem fer eftir fjölda Boeing 737 MAX þotna í flota
hvers flugfélags.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.