flugfréttir
FAA lækkar öryggisstuðul Malasíu niður í 2. flokk
- Telja að flugmálayfirvöld í landinu uppfylla ekki kröfur ICAO
Frá flugvellinum í Kuala Lumpur
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa lækkað flugöryggisstuðul hjá flugmálayfirvöldum í Malasíu niður í 2. flokk sem þýðir að takmarkanir verða settar á nýjar flugleiðir frá Malasíu til Bandaríkjanna.
Malasía hefur verið í flokki „Category 1“ en með þessu fer landið niður í Category 2
en með því geta flugfélög á borð við Malaysia Airlines og Air Asia ekki hafið nýjar flugleiðir til
Bandaríkjanna nema að sækja um sérstaka heimild og einnig sérstakt leyfi fyrir hvern flugvöll
í Bandaríkjunum.
FAA segir að við úttekt á flugöryggi í Malasíu hafi annmarkar komið í ljós
og kemur fram að starfsemi malasískra flugmálayfirvalda uppfylli ekki kröfur
Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO) og því hafi verið ákveðið að lækka stuðulinn niður
í 2. flokk.
Malasía hefur haldið 1. flokks stuðli (Category 1) frá því árið 2003 en úttekt var gerð í apríl
í vor og voru niðurstöðurnar ræddar í júlí í sumar.
Önnur lönd sem einnig eru í 2. flokki eru meðal annars Bangladesh, Kosta Ríka, Curacao, Ghana
og Tæland.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.