flugfréttir

Lufthansa nær sáttum við flugfreyjur og flugþjóna

- Ekki frekari verkfallsaðgerðir í bili

13. nóvember 2019

|

Frétt skrifuð kl. 08:09

Ekki er von á frekari verfallsaðgerðum meðal flugfreyja og flugþjóna hjá Lufthansa í bili

Engar frekari verkfallsaðgerðir eru framundan eftir að Lufthansa náði samkomulagi við þýska verkalýðsfélagið UFO sem fer fyrir flugfreyjum og flugþjónum félagsins.

Lufthansa þurfti í síðustu viku að fella niður yfir 1.300 flugferðir vegna verkfallsaðgerða sem stóðu yfir í tvo sólarhringa þar sem flugfreyjur og flugþjónar hafa barist fyrir bættari launakjörum.

Bæði Lufthansa og UFO tilkynntu í gær að báðir aðilar hafa sæst á að verða við beiðni gerðardóms og setjast að nýju að samningaborðinu og ræða lausn í deilunni.

Fram kemur að viðræður hafi þegar staðið yfir síðustu daga frá því verkfallinu lauk og lofi viðræðurnar góðu og segir í yfirlýsingu að margt bendi til þess að báðir aðilar séu að nálgast lausn í stöðunni.

Lufthansa hefur þegar lofað því að draga til baka fyrirhuguð málaferli á hendur verkalýðsfélaginu og bæta úr ýmsum atriðum sem farið var fram á og í staðinn ætlar UFO að setja á hilluna allar frekari verkfallsaðgerðir.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga