flugfréttir

Vélmenni rekin frá Boeing - Starfsmenn fengnir aftur í verkið

- Of mörg mistök hjá róbótunum sem fór mikill tími í að lagfæra

15. nóvember 2019

|

Frétt skrifuð kl. 07:31

Róbótarnir hafa meðal annars verið notuð til þess að bora fyrir festingum í íhluti fyrir Boeing 777X þotuna

Nokkrum vélmennum og róbótum verður „sagt upp“ hjá Boeing sem tekin voru í notkun fyrir 4 árum síðan við framleiðslu á íhlutum og einingum fyrir Boeing 777X þotuna og verða „lifandi starfsmenn“ fengnir aftur til að vinna vinnuna á gamla mátann.

Það var árið 2015 sem að Boeing tók í notkun sérstök verksmiðjuvélmenni sem hafa síðan þá séð um að koma fyrir hnoðum og boltum og bora fyrir í einingar á flugvélaskrokk fyrir arftaka Boeing 777 þotunnar.

Boeing mun þakka vélmennunum fyrir þau störf sem þau hafa sinnt á þessu tímabili en á næstu vikum munu hefðbundnir starfsmenn taka við keflinu.

Vélmennin í verksmiðjum Boeing hafa ekki verið að skila af sér eins nákvæmum vinnubrögðum eins og krafist var af þeim

Í ljós hefur komið að vélmennin gerðu of mörg mistök þar sem nákvæmnin var ekki nægilega mikil og þá komu upp of mörg tilvik þar sem róbótarnir voru til vandræða og var skortur á þeirri handlagni og hugvitssemi sem aðeins mennirnir búa yfir.

Vélmennin, sem Boeing hefur notast við, koma frá fyrirtækinu KUKA Systems en fyrirtækið hefur meðal annars hannað róbóta fyrir bílaframleiðandann Tesla sem einnig lenti í vandræðum þar sem nákvæmnin var ekki alltaf nægilega mikil.

Einn af yfirmönnum yfir verkefninu með róbótana segir að í upphafi hafi verið freistandi að hafa starfsmenn sem gátu unnið án þess að borða og taka sér hvíld en tvíverknaðurinn sem fór í að laga það sem var ekki nægilega vel gert hafi verið gríðarlegur.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga