flugfréttir
Missti mótor í flugtaki og fór í gegnum auglýsingaskilti
- Þrír slasaðir eftir flugslys í Utah í gær
Flugvélin var nýfarin í loftið þegar hún missti mótor og rakst utan í auglýsingaskilti nálægt hraðbrautinni
Þrír slösuðust og þar af tveir alvarlega er lítil flugvél fór í gegnum auglýsingaskilti í bænum Ogden í Utah í Bandaríkjunum í gær.
Flugvélin, sem var af gerðinni Piper PA-28 Cherokee, fór í loftið frá Ogden-Hinckley flugvellinum um þrjúleytið að staðartíma með einn flugmann og tvo farþega um borð.
Fram kemur að mótor vélarinnar hafi misst afl í flugtakinu skömmu eftir að hún hóf sig á loft og fór flugvélin
utan í auglýsingaskilti sem gnæfir yfir Interstate 15 hraðbrautinni, skammt frá flugvellinum.
Flugmaðurinn var fluttur með þyrlu á sjúkrahús en farþegarnir tveir voru fluttir með
sjúkrabíl. Að minnsta kosti tveir eru alvarlega slasaðir en fram kemur að enginn af þeim er í lífshættu.
Fjöldi fólks safnaðist við flak vélarinnar skömmu eftir að hún brotlenti við Interstate 15 hraðbrautina. Í bakgrunni má sjá auglýsingaskiltið sem vélin rakst á
Töluverður fjöldi ökumanna stöðvaði bíla sína og fóru að flakinu til að veita aðstoð og þar af nokkrir sem voru með slökkvitæki. Að minnsta kosti einn vegfarandi var fluttur á sjúkrahús með reykeitrun.
Aðilar frá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) og samgönguöryggisdeild Bandaríkjanna (NTSB) hafa verið
kallaðir á vettvang en flugvélin er gjörónýt.
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.