flugfréttir
AirBaltic selur fimm A220 þotur og leigir til baka
Airbus A220 þota airBaltic
Flugfélagið airBaltic hefur ákveðið að selja fimm Airbus A220-300 þotur (CSeries CS300) og leigja vélarnar til baka.
Það er kanadíska flugvélaleigan Chorus Aviation sem mun kaupa vélarnar af airBaltic sem verða áfram
í flota félagsins en um sölu- og endurleigusamning er að ræða og mun fyrirtækið kaupa fyrstu tvær vélarnar
fyrir áramót en hinar þrjár á þriðja ársfjórðungi ársins 2020.
Vélarnar fimm hafa ekki enn verið afhentar til airBaltic frá Airbus og er því í raun um að ræða breytingu
á eignarhaldi auk sölu og mun Chorus Aviation verða skráður eigandi á meðan airBaltic verður flugrekstaraðili að vélunum.
Með kaupunum á Airbus A220 þotunum fimm verður Chorus Aviation komið með 60 flugvélar en fyrirtækið
á 43 skrúfuþotur af gerðinni Q400 og ATR 72-600 og sautján farþegaþotur af gerðinni CRJ900, CRJ1000, Embraer
190 og Embraer 195.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.