flugfréttir
Kynna lengra nef á King Air fyrir meiri hleðslu
Með lengra nefi verður hægt að koma fyrir 113 kílóum af hleðslu til viðbótar um borð í King Air flugvélarnar
Textron Aviation hefur kynnt nýja útgáfu af nefhluta fyrir King Air flugvélarnar sem standa flugrekendum til boða en með því myndast meira pláss fyrir frakt.
Með lengra nefi verður til 0.33 rúmmetrar af rými þar sem hægt verður að koma fyrir 250 pundum af frakt eða töskum
sem samsvarar 113 kílóum.
Framlengingin á nefinu stendur til boða fyrir King Air 350 vélarnar og 350C fraktútgáfuna og einnig fyrir 350ER.
Textron Aviation segir að ráðist hafi verið í hönnun á lengri nefi með viðbótarplássi til að koma til móts
við kröfur viðskiptavina sem vilja bæta við hleðslu í King Air vélunum fyrir t.a.m. sérstakar sendiferðir eða þá sem vilja geta flogið með aðeins meiri farangur eða frakt en gengur og gerist.
Yfir 7.500 eintök hafa verið smíðuð af King Air og Super King Air flugvélunum síðan Beechcraft kom með þær
á markaðinn fyrst árið 1964.
King Air flugvélarnar eru notaðar í margskonar starfsemi um allan heim bæði í farþegaflugi, fraktflugi, sjúkraflugi,
eftirlitsflugi, strandgæslu, hernaði og einnig meðal opinberra stofnanna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.