flugfréttir
A350 þota British Airways skemmdist í málningu hjá Airbus
Airbus A350-1000 þota British Airways í Toulouse / Myndin tengist fréttinni ekki beint
Nýjasta Airbus A350-1000 þota British Airways varð fyrir skemmdum í málningarvinnu hjá Airbus í Toulouse en vélin skemmdist þegar verið var að leggja lokahönd á að mála vélina í litum félagsins rétt fyrir afhendingu.
Airbus segir að atvik hafi átt sér stað við málningu án þess að taka fram með hvaða hætti flugvélin skemmdist
en tekið er fram að framleiðandinn „vinni náið með viðskiptavininum“ að leysa málið svo hægt sé að afhenda
þotuna í desember.
Samkvæmt heimildum frá þeim sem þekkja til þá varð þotan fyrir skemmdum eftir að búnaður inn í málningarskýlinu
rakst í vélina og olli skemmdum á yfirborði hennar.
British Airways hefur fengið tvær Airbus A350-1000 þotur afhentar og á félagið að fá tvær til viðbótar
fyrir áramót.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.