flugfréttir

Fjórtán prósenta aukning í sölu á rafeindakerfum fyrir flugvélar

- Stærsti markaðurinn er Bandaríkin og Kanada

25. nóvember 2019

|

Frétt skrifuð kl. 07:11

Enn og aftur er það Garmin sem er einn stærsti framleiðandi á flugkerfum, stjórnkerfum og stjórnskjáum fyrir flugvélar í heiminum

Töluverð aukning hefur orðið á sölu á rafeindabúnaði og stjórnkerfum fyrir flugvélar í heiminum á árinu sem er senn á enda.

Sala á flugkerfum á fyrstu níu mánuðum ársins 2019 nam 2.2 milljörðum bandaríkjadala sem samsvarar 272 milljörðum króna en á tímabilinu frá júlí fram til september jókst salan um 14 prósent samanborið við sama tímabil í fyrra.

Mest aukning varð á sölu á flug- og stjórnkerfum fyrir einkaþotur auk minni einkaflugvéla í almannaflugi en samkvæmt Mike Adamson, framkvæmdarstjóra hjá Aircraft Electronics Association, hefur salan aukist meðal ára sl. 11 ár.

Bæði er um að ræða aukningu á „retrofit“ kerfum og kerfum fyrir nýjar flugvélar sem fara beint til flugvélaverksmiðja en helmingur af sölu á „avionics“-kerfum er vegna endurnýjunar á kerfum á notuðum flugvélum og er þá bæði um að ræða rafkerfi og stjórnskjái.

Mest er salan á kerfum í Kanada og í Bandaríkjunum sem nemur 74.9% af öllum markaðnum í heiminum og er tekið með í reikninginn kerfi á borð við tæki í stjórnklefa, farþegarými, hugbúnaðaruppfærslur, færanleg kerfi, vottuð kerfi sem og óvottuð, rafeindakerfa, rafhlöður auk fleiri kerfi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga