flugfréttir
Áttunda Sukhoi Superjet 100 vél afhent Aeroflot
Sukhoi Superjet 100 vél Aeroflot
Aeroflot tók á móti sinni áttundu Sukhoi Superjet 100 farþegaþotu á dögunum sem fór sitt fyrsta áætlunarflug í dag.
Fyrsta flugið var flogið frá Sheremetyevo-flugvelli í Moskvu til borgarinnar Kazan og lenti vélin
aftur í Moskvu rétt fyrir hádegi.
Aeroflot hefur nú átta Sukhoi Superjet 100 vélar sem fljúga frá Moskvu til 14 staða í Rússlandi auk þess
sem þær eru notaðar til 10 áfangastaða í millilandaflugi.
Aeroflot hefur lýst því yfir að þeir hafi haft mjög góða reynslu af vélunum í flugi á syttri leiðum
þar sem mikil eftirspurn er eftir flugsætum og er sætanýting mjög góð.
Aeroflot pantaði alls 30 Sukhoi Superjet 100 vélar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.