flugfréttir
Air France losar sig við fyrstu A380 risaþotuna
- Ætla að losa sig við allar A380 risaþoturnar fyrir árið 2022
F-HPJB á flugvellinum í San Francisco í júní í sumar
Air France hefur tekið fyrstu Airbus A380 vélina úr umferð úr flotanum sem markar upphafið að endalokum risaþotunnar hjá flugfélaginu franska.
Fyrsta risaþotan til að kveðja flota Air France ber skráninguna F-HPJB en hún var afhent til félagsins
í febrúar árið 2010.
Air France, líkt og Singapore Airlines, ákvað að endurnýja ekki leigusamning á þotunni sem er í eigu
þýska fyrirtæksins Dr. Peters Group sem átti einnig þær risaþotur sem voru í flota Singapore Airlines.
F-HPJB var flogið sl. laugardag til Möltu og verður risaþotan máluð í hvítum lit og merkingar Air France
fjarlægðar auk þess sem hluti af innréttingum verða rifnar úr vélinni.
Air France ætlar að vera búið að losa sig við allar A380 risaþoturnar innan þriggja ára og verða þær farnar
út flotanum árið 2022.
Dr. Peters Group hefur ekki fundið neinn annan leigjanda að vélinni líkt og með risaþotur Singapore Airlines
og er því hætta á því að hún verði rifinn í varahluti seinna meir en Dr. Peters Group segir samt að ekki standi til að senda þotuna í niðurrif.
Air France hefur tíu Airbus A380 risaþotur en fjórar af þeim eru leigðar af Dr. Peters Group.
F-HPJB var flogið til Möltu sl. laugardag þar sem hún verður máluð hvít og merkingar Air France fjarlægðar
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.