flugfréttir
Aukin áhersla á þjálfun flugmanna í fráhvarfsflugi
Þotan sem fórst í mars árið 2016 á flugvellinum í Rostov-on-Don var af gerðinni Boeing 737-800
Miðausturlenska lágfargjaldafélagið Flydubai hefur lýst því yfir að til standi að taka upp ítarlega þjálfun fyrir flugmenn er kemur að fráhvarfsflugi (go-around) í kjölfar flugslyssins er Boeing 737-800 þota félagsins brotlent á flugvellinum í rússnesku borginni Rostov-on-Don í mars árið 2016.
Lokaskýrsla varðandi slysið var birt nú í vikunni og er talið að orsökina megi rekja til mannlegra mistaka meðal
flugstjórans sem er rakið til þess að hann missti getu til að skynja aðstæður þegar vélin var í sínu öðru fráhvarfsflugi
á flugvellinum í slæmu veðri með þeim afleiðingum að hún skall til jarðar.
Vélin fór með annan vænginn ofan í brautina, brotlenti og brotnaði í sundur og varð alelda þar sem hún staðnæmdist utan brautar og létust allir sem voru um borð.
Flydubai segir að fljótlega eftir slysið hafi verið ákveðið að taka upp strangari þjálfun flugmanna er kemur
að fráhvarfsflugi og hafi þjálfunarkerfið verið „einfaldað“ í þeim tilgangi að flugmenn geti öðlast betri hæfni við
að framkvæmda fráhvarfsflug með betri árangri.
Auk þess segir félagið að flugmenn hafa verið þjálfaðir í að öðlast skilning
á sjónvillum sem geta gert vart við sig í myrkri þegar horft er út um glugga á stjórnklefanum í slæmu veðri er vélin
er lágt yfir jörðu í lendingarham.
Rannsóknarnefndir flugslysa í Rússlandi og í Sameinuðu arabísku furstadæmunum eru þó ekki sammála um hversu
mikið hlutverk sjónvilla flugmannanna hafi spilað inn í aðstæðurnar og er bent á nokkur atriði er varðar aðgerðir
og stillingar á hæðarstýri sem hafi verið breytt nokkrum sekúndum fyrir slysið auk þess sem ekki er vitað hversu mikið
þeir fylgdust með mælum í stað þess að styðjast við að horfa út um gluggann á umhverfið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.