flugfréttir

FAA sakar Lufthansa um að hafa flogið ólöglega til Bandaríkjanna

- Fara fram á að flugfélagið þýska verði sektað um 790 milljónir króna

28. nóvember 2019

|

Frétt skrifuð kl. 08:23

Airbus A340-600 breiðþota Lufthansa í aðflugi að flugvellinum í San Diego

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) saka Lufthansa um að hafa flogið að minnsta kosti 900 flugferðir ólöglega til Bandaríkjanna án tilskilinna leyfa.

Í tilkynningu á vefsíðu FAA segir að um sé að ræða áætlunarflug til og frá San Diego og Philadelphia á vegum Lufthansa sem hafi ekki uppfyllt reglugerðir bandarískra flugmálayfirvalda og kemur fram að flugfélagið þýska hafi vitað að það skorti heimildir fyrir flugferðunum.

Erlend flugfélög geta aðeins flogið áætlunarflug til þeirra flugvalla í Bandaríkjnunum sem eru á lista FAA samkvæmt rekstarskilyrðum og kemur fram að hvorki San Diego né Philadelphia hafi verið á listanum sem snýr að Lufthansa.

Fram kemur að frá 22. mars 2018 til 27. maí 2019 hafi Lufthansa flogið 600 flugferðir með Airbus A340 frá Frankfurt til San Diego og til baka og 292 flug milli Frankfurt og Philadelphia með Airbus A330-300 og Boeing 747-400 sem uppfylltu ekki skilyrði FAA.

Bandarísk flugmálayfirvöld fara fram á að Lufthansa verði sektað um 6,4 milljónir Bandaríkjadala vegna þessa sem samsvarar 790 milljónum króna.

Lufthansa hefur 30 daga til þess að svara bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) vegna þessa.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga