flugfréttir
Flaug 11 tíma „fýluferð“ yfir hafið vegna eldgoss í Mexíkó
- Voru með hesta um borð í fraktinni og því ekki möguleiki að lenda í Ameríku
Júmbó-þotan snéri við eftir að hafa flogið 11 klukkustunda flug fram og til baka yfir Atlantshafið í gær
Júmbó-þota frá KLM Royal Dutch Airlines þurfti í gær að snúa við til Amsterdam og fljúga alla leið til baka yfir Atlantshafið þegar hún var nýkomin yfir Norður-Ameríku vegna eldgoss í Mexíkó.
Flug KL685 fór í loftið frá Schiphol-flugvellinum kl. 15:06 að staðartíma áleiðis til Mexíkóborgar en þegar vélin var komin
yfir Brunswick í Kanada tilkynnti náttúruhamfarastofnunin í Mexíkó um að eldfjallið Popocatepetl hefði byrjað að gjósa
og væri mikil aska í loftinu í nágrenni fjallsins sem teygði sig enn frekar upp í andrúmsloftið.
Júmbó-þotan snéri við og hélt aftur til Amsterdam þar sem hún lenti klukkan 2 í nótt og hafði þotan því flogið
í 11 klukkustundir með farþega fram og til baka yfir Atlantshafið.
Flugferill þotunnar á Flightradar24.com
KLM afsakaði þessi óþægindi á Twitter-síðu sinni og tilkynnti að flugskilyrði hefðu verið mjög óhagstæð vegna
eldvirkni í eldfjallinu Popocatepetl í Mexíkó.
KLM er annað tveggja flugfélaga sem flýgur á milli Mexíkóborgar og Amsterdam en mexíkóska ríkisflugfélagið, Aeromexico, flýgur einnig sömu leið. Mörg önnur flugfélög flugu hinsvegar til Mexíkóborgar í gær þrátt fyrir eldgosið
og þar á meðal Lufthansa sem náði að lenda í borginni þrátt fyrir öskuskýið.
Þá kemur fram að þotan hafi verið að flytja nokkra hesta sem voru um borð í fraktinni og þar af leiðandi
var ekki hægt að lenda á varaflugvelli í Ameríku sem er ein ástæða þess að ákveðið var að halda til baka yfir Atlantshafið
og lenda aftur í Amsterdam.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.