flugfréttir

Air India mun leggjast af ef ekki næst að einkavæða félagið

- Frestur fram til mars árið 2020 til þess að selja Air India

29. nóvember 2019

|

Frétt skrifuð kl. 13:42

Árið 2018 bárust engin tilboð í félagið en núna verður reynt að selja rekstur félagsins í annað sinn

Air India mun neyðast til þess að hætta rekstri ef næstu tilraunir til þess að einkavæða ríkisflugfélagið ná ekki fram að ganga.

Þetta sagði Hardeep Singh Puri, flugmálaráðherra Indlands, í ræðu sinni á indverska þinginu en ríkisstjórn Indlands er nú að undirbúa sölu á öllum hlut í Air India ásamt dótturfélaginu Air India Express og 50% hlutar í flugafgreiðslufyrirtækinu SATS Airport Services.

Ríkisstjórnin hefur gefið frest til 31. mars árið 2020 til þess að einkavæða flugfélagið og er þetta önnur tilraunin til þess að selja rekstur Air India sem hefur skilað inn taprekstri í 8 ár eða allt frá samruna félagsins við Indian Airlines árið 2011.

Árið 2018 bárust engin tilboð í félagið en eins og staðan er í dag þá mega erlendir aðilar ekki kaupa meira en 49% hlut í Air India en ríkisstjórn landsins hefur lagt til að reglugerðir varðandi það verði afnumdar í þessu tilviki.

Air India hefur 169 flugvélar í flota sínum og flýgur til 43 borga í 31 landi í millilandaflugi auk til 55 áfangastaða í innanlandsflugi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga