flugfréttir

Gætu misst flugrekstarleyfið vegna seinkana á greiðslu launa

- Mótmæli og óeirðir farin að hafa veruleg áhrif á rekstur Hong Kong Airlines

29. nóvember 2019

|

Frétt skrifuð kl. 14:50

Flugvélar Hong Kong Airlines á Chek Lap Kok flugvellinum í Hong Kong

Flugmálayfirvöld í Hong Kong íhuga nú að svipta flugfélaginu Hong Kong Airlines flugrekstarleyfinu eftir að félagið tilkynnti að það muni seinka launagreiðslum til starfsmanna vegna slæmrar afkomu sem rekja má til mótmæla og óeirða á Hong Kong.

Hong Kong Airlines segir að afkoma félagið hafi orðið fyrir verulegum skaða undanfarnar vikur og mánuði vegna mótmæla í borginni og hefur eftirspurn meðal ferðamanna til Hong Kong dvínað í samræmi við það.

Flugfélagið lýsti því yfir nú rétt fyrir helgi að um 1.600 starfsmenn af þeim 3.560 sem starfa hjá félaginu fá ekki laun greidd fyrr en eftir fyrstu vikuna í desember.

Flugmálayfirvöld hafa varað félagið við að taka sig saman í andlitinu og stendur nú til að koma á fundi og athuga hvort að grípa þurfi til aðgera eftir að félagið tilkynnti um seinkun á launagreiðslum.

Félagið hefur að undanförnu hætt tímabundið öllu áætlunarflugi til Vancouver, Ho Chi Minh City og til Tianjin í Kína og er verið að endurskoða leiðarkerfi félagsins og stendur til að einblína á mikilvægar tengingar til þeirra borga sem viðskiptafarþegar nýta sér reglulega.

Mótmæli og óeirðir þeim tengdum hafa nú staðið yfir í sex mánuði í Hong Kong og hafa sjaldan eða aldrei verið eins fáir ferðamenn í borginni en til að mynda hefur orðið 22% samdráttur á bókunum hjá flugfélaginu Cathay Pacific.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga