flugfréttir
Brátt mun Airbus A350-1000 geta tekið 480 farþega
Airbus A350-1000 þotan
Airbus hefur fengið grænt ljós frá evrópskum flugmálayfirvöldum (EASA) fyrir nýrri útgáfu af Airbus A350-1000 þotunni sem mun koma með 80 fleiri sæti og mun þotan því geta tekið allt að 480 farþega.
Í dag er hægt að útfæra A350-1000 þotuna með sætum fyrir 440 farþega en með hönnun á farþegarými, sem kemur með „Type-A+“ útgangi með tvöfaldri neyðarrennibraut, verður hægt að fá vottun fyrir 80 fleiri sætum um borð í þotuna.
Samkvæmt reglugerðum EASA þurfa níu flugfreyjur og flugþjónar að starfa um borð í þotu sem tekur yfir 400
farþega en Airbus hefur notað þessa útfærslu einnig fyrir A330-900 sem getur tekið allt að 460 farþega.
Með sætum fyrir 480 farþega verður Airbus A350-1000 þotan enn samkeppnishæfari gagnvart Boeing 777X
þotunni sem mun mest geta tekið allt að 426 farþega ef miðað er við stærri útgáfuna, Boeing 777-9.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.