flugfréttir

United pantar fimmtíu A321XLR þotur frá Airbus

- Eiga meðal annars að leysa af hólmi Boeing 757-200 þoturnar

4. desember 2019

|

Frétt skrifuð kl. 07:23

Tölvugerð mynd frá Airbus af A321XLR í nýjum litum United Airlines

United Airlines hefur langt inn stóra pöntun í 50 farþegaþotur frá Airbus af gerðinni Airbus A321XLR að andvirði 7 milljarða bandaríkjadala sem jafngildir 853 milljörðum króna.

Airbus A321XLR verður ein langdrægasta farþegaþota heims í flokki þeirra sem koma með einum gangi og er um að ræða A321neoLR þotuna með enn lengra flugdrægi.

United Airlines ætlar sér að nota A321XLR þoturnar bæði til þess að leysa af hólmi eldri þotur auk þess sem félagið mun nota A321XLR í flugi yfir Atlantshafið til Evrópu.

Fá fyrstu þoturnar afhentar árið 2024

United hefur að undanförnu bæði verið að skoða A321XLR og fyrirhugaða þotu sem Boeing ætlar að koma með á markaðinn um miðjan næsta áratug sem talið er að verði Boeing 797 en Airbus A321XLR varð fyrir valinu.

United ætlar skipta Boeing 757 þotunum út fyrir A321XLR og verður fyrsta eintakið afhent árið 2024 og er fyrsta áætlunarflugið fyrirhugað árið 2025.

Airbus kynnti A321XLR þotuna til leiks á flugsýningunni í París í sumar

„Fyrir utan að þotan sé enn hagkvæmari þá mun Airbus A321XLR einnig opna dyr að nýjum áfangastöðum sem þýðir að við getum stækkað leiðarkerfið okkar enn frekar“, segir Andrew Nocella, rekstrarstjóri United Airlines.

Airbus kynnti A321XLR þotuna fyrst til leiks á flugsýningunni í París í sumar en þotan kemur með hámarksflugtaksþunga upp á 101 tonn og hefur flugdrægi upp á 4.700 nm mílur.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga