flugfréttir
Condor tekur í notkun gamla merkið með fuglinum
- Gula Thomas Cook hjartað verður fjarlægt af stélinu á öllum flotanum
Fyrsta flugvélin í flota Condor sem kemur með gamla lógóinu bæði á stéli og á vænglingum
Þýska flugfélagið Condor hefur tekið aftur upp sitt upprunalega merki sem félagið notaði í gamla daga en merki þess má rekja aftur til sjöunda áratugarins.
Með því segir Condor formlega skilið við þann tíma sem félagið var í samstarfi við Thomas Cook og mun gula
hjartað hverfa af stélum félagsins og gamla Condor-merkið fara aftur á stélið á öllum flugvélum í flotanum.
Á dögunum var lokið við að mála fyrstu þotuna með gamla merkinu sem er Boeing 767 breiðþota félagsins en
félagið segir að allur flotinn mun fá gamla merkið aftur og þar á meðal Boeing 757 þoturnar og allar A320 vélarnar.
Boeing 767 þotan flaug sl. laugardag fyrsta flugið fyrir Condor með endurkomu gamla merkisins sem var flug
frá Frankfurt til Cancun í Mexíkó.
Ralf Teckentrup, framkvæmdarstjóri Condor, segir að nauðsynlegt hafi verið að gera breytingar á ímynd félagsins
þar sem Thomas Cook væri ekki lengur til og Condor ekki hluti af hinu gjaldþrota félagi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.