flugfréttir

Alitalia fær 50 milljarða króna lán frá ítalska ríkinu

- Dugar fyrir rekstri fram til maí 2020 á meðan verið er að finna fjárfesta

4. desember 2019

|

Frétt skrifuð kl. 14:55

Alitalia hefur verið rekið undir gjaldþrotavernd frá árinu 2017

Ríkisstjórn Ítalíu hefur ákveðið að veita ríkisflugfélaginu Alitalia lán upp á 53 milljarða króna til þess að tryggja áframhaldandi rekstur félagsins en á sama tíma er verið að leita að nýjum fjárfestum til þess að taka yfir rekstur þess.

Rómverska þingið samþykkti lánið til Alitalia sl. mánudag en það bíður hinsvegar samþykkis frá Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins. Flugfélagið ítalska hefur tæknilega verið gjaldþrota frá árinu 2017 eftir að sótt var um gjaldþrotameðferð.

Lánsupphæðin mun bæði tryggja daglegan rekstur og einnig fjármagna aðgerðir til einkavæðingar og þá verður féið einnig notað til þess að styrkja innviði þess.

Ekki hefur tekist að einkavæða flugfélagið þar sem utanaðkomandi fjárfestir hefur ekki fundist til að taka við keflinu sem varð til þess að ríkisstjórn landsins ákvað að grípa inn í með láni.

Fram kemur að lánið eigi að tryggja rekstur félagsins fram til 31. maí á næsta ári á meðan verið er að leita að nýjum eiganda en verkalýðsfélög hafa sett þrýsting á stjórnvöld til þess að koma með langtímalausn við vanda Alitalia ef ekki tekst að finna fjárfesta.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga