flugfréttir
Fékk háa sekt fyrir að lenda dróna á flugvellinum í Las Vegas
- Segist hafa misst stjórn á drónanum sem hvarf - Ósáttur við sektina
Rueben Burciaga notaði dróna af gerðinni DJI Phantom 3 til þess að gera myndband úr lofti af Las Vegas
Drónaeigandi í Kaliforníu er ekki sáttur við að þurfa að greiða sekt upp á 2.4 milljónir króna eftir að dróni, sem hann stýrði yfir Las Vegas í fyrra, lenti á McCarran-flugvellinum í spilaborginni.
Eigandi drónans hafði verið að mynda „Strippið“ úr lofti, aðalumferðargötuna í Las Vegas, með dróna sem hann stýrði og vilja bandarísk stjórnvöld meina að hann hafi flogið drónanum því
næst í átt að alþjóðaflugvellinum í borginni.
Drónaflugmaðurinn, Rueben Burciaga, telur að bandaríska leyniþjónustan hafi tekið yfir drónann sem hafi flogið stjórnlaust frá honum og
lent á flugvellinnum í Las Vegas rétt hjá einni af flugbraut vallarins á sama tíma og Donald Trump, Bandaríkjaforseti,
var í heimsókn í spilaborginni.
Burciaga segist hafa verið sektaður um 15.000 bandaríkjadali og því næst hafi bæst 5.000 dalir ofan á sektina frá
bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) vegna brots á loftferðalögum.
Atvikið átti sér stað þann 23. júní árið 2018 en Burciaga ákvað að búa til myndskeið úr lofti í tengslum við myndband
um heimsókn hans til Las Vegas. Eftir að hafa myndað aðalgötuna í Las Vegas missti hann drónann úr augsýn
og sá hann ekki meira.
Nokkrum vikum síðar fékk hann bréf í pósti frá FAA sem útlistaði a.m.k. níu mismunandi brot sem hann á að hafa
framið á almennum ríkislögum. Burciaga telur að 4.000 dollara sekt sé viðunandi en talsmaður FAA segir að hann hefði
þá átt að áfrýja málinu en það sé nú of seint.
Burciaga, sem hefur sett myndbandið á Youtube, fékk drónann aftur í hendurnar frá FAA og var minniskubburinn ennþá í drónanum
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.