flugfréttir
Sótt um gjaldþrotavernd fyrir South African
Flugvélar South African Airways á flugvellinum í Jóhannesarborg
South African Airways hefur farið fram á gjaldþrotameðferð og hefur ríkistjórn Suður-Afríku sótt um sambærilega gjaldþrotavernd fyrir félagið á borð við Chapter 11 í Bandaríkjunum.
Fram kemur að með þessu sé ríkisstjórn Suður-Afríku að grípa til síðasta hálmstrásins í að bjarga félaginu frá
gjaldþroti og verða settir 33 milljarðar króna í reksturinn til að tryggja áframhaldandi starfsemi.
„Það er ósk okkar að enduruppgerð félagsins eigi eftir að marka upphafið að nýjum tímum í flugi í Suður-Afríku með
nýjum störfum í ferðamannaiðnaðinum“, segir Cyril Ramaphosa, forstjóri South African Airways.
Gerð verða drög að nýrri rekstraráætlun og sérstakir ráðgjafar verða fengnir til þess að fylgjast náið með
rekstrinum en South African skilaði seinast hagnaði árið 2011.
Taprekstur South African Airways hefur meðal annars verið rakinn til óhæfni meðal stjórnenda, spillingar innan
stjórnar félagsins og breytinga í markaðsumhverfi í flugiðnaðinum.
Rekstur South African Airways hefur einungis verið haldið gangandi af fjárveitingu frá ríkisstjórn landsins sem hefur haldið lífi í félaginu að undanförnu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.