flugfréttir
Þota frá Emirates kyrrsett í Nígeríu vegna skaðabótamáls
- Mál sem má rekja til ársins 2007 er farþega var meinað að fara um borð
Boeing 777 þota Emirates á Murtala Muhammed flugvellinum í Lagos
Dómstóll í Nígeríu hefur kyrrsett eina af Boeing 777 þotum Emirates vegna skuldar upp á 2.7 milljón króna sem rekja má til máls sem varðar skaðabótagreiðslu til farþega sem var meinað að fara um borð í flug á vegum félagsins fyrir 12 árum síðan.
Það var árið 2007 sem að kona, Promise Mekwunye að nafni, bókaði flug með Emirates frá Dallas í Bandaríkjunum
til Lagos í Nígeríu með tengiflugi í Dubai og til baka en miðinn kostaði 361 þúsund krónur.
Mekvunye, sem stundaði nám við North Texas háskólann, var meinað að fara um borð í flugið í Houston án þess að fá neinar frekari útskýringar og bókaði hún nýtt flug til Lagos með American Airlines tveimur dögum síðar sem var flogið með tengiflugi í gegnum London.
Mekvunye fór fram á bætur sem markaði upphafið að dómsmáli þar sem hún vildi fá flugmiðann endurgreiddan frá Emirates. Málið var tekið fyrir þrisvar sinnum sem endaði með málaferli í réttarsal í Lagos árið 2010 og
var niðurstaðan sú að Emirates hafði ekki rétt á því að hafa hafna henni um borð í flugvélina árið 2007.
Emirates áfrýjaði þeim dómi og þvertók fyrir að reglugerð í Montréal-sáttmálinn ætti við í þessu tilviki og endaði málið
í hæstarétti landsins í febrúar fyrr á þessu ári þar sem áfrýjun Emirates var hafnað og dómur héraðsdóms sagður
gildur.
Málið hefur nú náð hámarki eftir að yfirvöld í Nígeríu kyrrsettu eina af Boeing 777 þotum
félagsins skömmu eftir komuna til Murtala Muhammed flugvallarins í Lagos og er krafist að Emirates greiði 2.719.000 krónur ef félagið vill fá þotuna sína aftur.
Í bréfi vegna málsins segir: „Farið er fram á í þessu bréfi, samkvæmt dómsúrskurði, að flugvél af gerðinni Boeing 777-300, með skráningu A6 á vegum
Emirates, og allar aðrar flugvélar frá félaginu sem kunna að lenda á nígerískri grund, verða kyrrsettar uns sektin
er greidd að fullu. Að 30 dögum liðnum, sé sektin enn ógreidd, verður flugvélin seld hæstbjóðanda á uppboði“.
Emirates hefur ekki tjáð sig varðandi málið en ein Boeing 777-300 þota er metin á 45 milljarða króna og nemur
sektarupphæðin því 0.0059% af andvirði flugvélarinnar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.