flugfréttir
Flugmenn hjá IndiGo varaðir við að nota fullt afl í flugtaki
Airbus A320neo þota frá indverska flugfélaginu IndiGo
Indverska flugfélagið IndiGo hefur gefið út viðvörun til flugmanna sinna þar sem þeir eru varaðir við því að setja hámarks afl á hreyflana á nýju Airbus A320neo þotum félagsins í flugtaki og í klifri.
Viðvörunin er send út í kjölfar 13 atvika sem hafa komið upp á þessu ári sem hefur orsakað bilanir
í lágþrýstihluta túrbínunar í PW1100G hreyflunum sem framleiddir eru af Pratt & Whitney.
Talsmaður IndiGo segir að flugmenn muni héðan í frá nota aðeins lægri aflstillingu fyrir flugtak og flugtaksklifur
í samræmi við upplýsingar frá Airbus og Pratt & Whitney en komið hefur í ljós að IndiGo er eina flugfélagið
sem hefur orðið fyrir barðinu á þessu vandamáli.
Airbus segir að flugfélög, sem hafa A320neo í flota sínum, geti notað fullt afl á hreyflunum en mælir með
að afl sé notað í samræmi við útreiknaða afkastagetu með tilliti til þyngdar, hitastigs auk annarra þátta.
IndiGo hefur skipað flugmönnum félagsins að nota ekki meira en 93% af hámarksafli og fara ekki yfir þau mörk
fyrr en flugvélarnar eru komnar yfir 25.000 feta hæð.
Með því mun það taka flugvélarnar 2 til 3 mínútur lengur að klifra upp í farflugshæð en samt mun það hafa
tiltölulega lítil áhrif á eldsneytisnotkun.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.