flugfréttir
Qantas flýgur síðasta júmbó-þotuflugið til Bandaríkjanna
Qantas hefur sex Boeing 747-400 þotur eftir í flotanum í dag
Qantas flaug sl. miðvikudag síðasta júmbó-þotuflugið sitt til Bandaríkjanna sem var áætlunarflug frá San Francisco til Sydney en héðan í frá verður það flug flogið með Dreamliner-þotum.
Qantas byrjaði að fljúga Boeing 747 árið 1971 og hafa alls 65 júmbó-þotur verið í flota félagsins í þau 48 ár
sem félagið hefur haft þær í notkun en í dag hefur félagið aðeins sex júmbó-þotur af gerðinni 747-400.
„Júmbó-þotan hefur verið aðalvinnuhesturinn hjá Qantas í yfir 40 ár og við höfum flogið næstum því öllum
tegundum af Boeing 747 sem smíðaðar hafa verið“, sagði Alan Joyce, framkvæmdarstjóri Qantas, en félagið
mun hætta að nota júmbó-þotuna á næsta ári.
Qantas tilkynnti um endalok júmbó-þotunnar í maí árið 2018 á sama tíma og félagið tilkynnti nýja
pöntun í Dreamliner-þotur af gerðinni Boeing 787-9 og hefur félagið fengið tíu slíkar afhentar og á eftir að fá
fjórar til viðbótar.
Þess má geta að Qantas flaug fyrsta flugið sitt milli Sydney og San Francisco fyrir 60 árum síðan, í júlí árið 1959, og var
það flug flogið með Boeing 707.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.