flugfréttir
Airbus fær nýja pöntun í minni gerðina af Airbus A330neo
Fyrsta Airbus A330-800 tilraunarþotan
Airbus hefur fengið óvænta pöntun í fjórar Airbus A330-800neo breiðþotur en tiltölulega lítill áhugi hefur verið fyrir styttri útgáfunn af A330neo þotunni og á tímabili var Airbus ekki með neinar pantanir í þessa útgáfu.
Airbus missti síðustu pöntunina í A330-800 í febrúar 2018 er Hawaiian Airlines hætti við pöntunina og valdi
Dreamliner-þotur frá Boeing í staðinn.
Nokkrum mánuðum síðar kom Uganda Airlines og lagði inn pöntun í tvær A330-800 þotur og um haustið
sama ár pantaði Kuwait Airways átta eintök af þotunni.
Airbus hefur haft pantanir í tíu A330-800 þotur en núna hefur nýtt flugfélag pantað fjórar þotur og er Airbus
því komið með pantanir í 14 þotur af minni gerðinni af A330neo en framleiðandinn hefur fengið
pantanir í 248 eintök stærri gerðinni, Airbus A330-900.
Ekki er vitað hver viðskiptavinurinn er sem pantaði fjórar A330-800 þotur og er hann skráður á pöntunarlista Airbus sem „óþekktur viðskiptavinur“.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.