flugfréttir

SAS aftur orðið stærsta flugfélagið á Norðurlöndum

- Farþegafjöldi Norwegian árið 2019 ekki lengur hærri en hjá SAS

9. desember 2019

|

Frétt skrifuð kl. 07:07

Flugvélar SAS og Norwegian

SAS er aftur orðið stærsta flugfélagið á Norðurlöndum í kjölfar samdráttar hjá Norwegian en flugfélagið norska hrifsaði þann titil af SAS í janúar árið 2017.

Norwegian hefur þurft að grípa til ýmissa sparnaðaraðgerða undanfarna mánuði með því að hætta flugi yfir Atlantshafið milli Evrópu og Ameríku auk þess sem kyrrsetning á Boeing 737 MAX og vandamál með Dreamliner-þoturnar hafa sett strik í reikninginn. Þá hefur félagið einnig selt Norwegian Air Argentina, dótturfélag sitt í Argentínu.

Áhrif þessara þátta komu í ljós í nóvember síðastliðnum þegar tölur um farþegafjölda sýndu að farþegum hafði fækkað um 600.000 í þeim mánuði sem er samdráttur upp á 20 prósent milli ára.

Árið 2018 flugu 37 milljónir farþega með Norwegian á meðan 29.7 milljónir farþega flugu með SAS en til samanburðar þá voru 29.3 milljónir sem flugu með Norwegian árið 2016 og 34.3 með SAS.

Eins og staðan er nú lítur út fyrir að farþegar með SAS verði yfir 35 milljónir á þessu ári á meðan gert er ráð fyrir að farþegafjöldinn hjá Norwegian nái 32.5 milljónum.

SAS stefnir ekki á aukinn umsvif á næsta ári en félagið gerir ráð fyrir að farþegum muni samt fjölga þar sem verið er að taka inn nýjar flugvélar sem margar hverjar koma með sætum fyrir fleiri farþega.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga