flugfréttir
Fréttaþyrla í árekstri við dróna
Fréttaþyrla á sveimi yfir Los Angeles
Þyrla frá fréttastöðinni KABC-TV í Bandaríkjunum lenti í árekstri við dróna í síðustu viku er þyrlan var á flugi yfir miðborg Los Angeles.
Þyrlan, sem er af gerðinni Airbus Helicopters AS350B2, fékk drónann í fremri brún vængsins á stélenda
þyrlunnar nálægt aftari stélspaðanum.
Eftir lendingu komu í ljós rispur, dældir og smávægilegar skemmdir á vængbrúninni eftir drónann en
að sögn fréttamanns, sem var um borð í þyrlunni, var fyrst talið að þeir hefðu flogið á fugl.
Áreksturinn hafði ekki áhrif á flugeiginleika þyrlunnar en flugmaðurinn ákvað að lenda til öryggis og
gekk varúðarlendingin vel fyrir sig.
Lögreglan í Los Angeles sendi út þyrlu til þess að reyna að hafa uppi á eiganda drónans en án árangurs. Skömmu eftir árekstrinn var út tilkynning þar sem eigendur dróna voru minntir á að fljúga drónum sínum af ábyrgð.
Fram kemur að eigandi drónans hafi brotið nokkrar reglugerðir varðandi notkun dróna og þar á meðal
að fljúga fjarstýrðu flygildi eftir sólsetur og einnig var brotin regla er varðar flug yfir 400 feta hæð en
áreksturinn átti sér stað í 1.000 feta hæð.
Ummerki og skemmdir á vængbrún á stélenda þyrlunnar
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.