flugfréttir
SAS mun hætta að fljúga á Narita-flugvöll í Tókýó
- Færa sig yfir á Haneda-flugvöll næsta vor
Airbus A340-300 breiðþota SAS á Narita-flugvellinum í Tókýó
SAS (Scandinavian Airlines) mun á næsta ári hætta að fljúga á Narita-flugvöllinn í Tókýó þar sem til stendur að félagið muni færa sig yfir á Haneda-flugvöllinn sem er sá næststærsti í borginni.
SAS segir að félagið byrji að fljúga um Haneda-flugvöllinn sumarið 2020 og segir félagið að
breytingin muni veita farþegum betri aðgang að samgöngum til miðborgar Tókýó.
Þá kemur fram að farþegar með SAS muni fá betri aðgang að tengiflugsmöguleikum með
japanska flugfélaginu ANA (All Nippon Airways) sem er einnig meðlimur í flugbandalaginu Star
Alliance líkt og SAS.
SAS hefur flogið í nokkra áratugi til Narita-flugvallarins og sl. ár með Airbus A340-300 breiðþotum
en félagið mun skipta yfir í nýju A350-900 þoturnar þegar félagið byrjar að fljúga á Haneda-flugvöllinn.
Finnair, sem einnig flýgur til Narita-flugvallarins, ætlar að hefja flug á Haneda-flugvöllinn á næsta ári
en félagið segir að það muni þó halda áfram að fljúga á Narita-flugvöll og því fljúga til tveggja
flugvalla í Tókýó.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.