flugfréttir
Piper Comanche brotlenti í garði á heimili hjá lækni í Litháen
- Talið að ísing og slæmt veður hafi orsakað flugslys í Litháen í gær
Piper Comanche flugvélin bar skráninguna LY-ARS
Tveir létu lífið í flugslysi í Litháen í gær er lítil tveggja hreyfla flugvél af gerðinni Piper PA-30 Twin Comanche brotlenti í garði í íbúðarhverfi í borginni Kaunas.
Tveir karlmenn voru um borð í vélinni en báðir mennirnir sem voru um borð voru flugmenn. Annar
þeirra var mjög reyndur flugmaður, 65 ára að aldri, en hinn flugmaðurinn var um þrítugt.
Sá reyndari hét Victor Ramon og var hann vel þekktur meðal flugmanna í Litháaen. Talið er að flugmaðurinn
hafi ekki gefið veðrinu nægilegan gaum fyrir brottför þar sem það var á mörkunum að það viðraði til flugs.
Mjög lágskýjað var yfir flugvellinum er hún fór í loftið og ísing í lágri flughæð og hitastig við frostmark og voru engar aðrar einkaflugvélar sem höfðu hafið sig til lofts frá flugvellinum á sama tíma.
Slæmt veður var til flugs er flugvélin hóf sig á loft í gær frá borginni Kaunas
Flugvélin brotlenti við einbýlishús en í húsinu bjó læknir sem kom hlaupandi út til að gera tilraun til
þess að bjarga lífi mannanna en fann við nánari athugun að á hvorgum þeirra fannst neinn púls.
Fram kemur að vélin hafi farið í loftið frá S. Dariaus and S. Gireno flugvellinum
í miðborg Kaunas og þykir margt benda til þess að ísing hafi orsakað flugslysið sem átti sér stað
skömmu eftir flugtak.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.