flugfréttir
„Alþjóðleg samstaða lykillinn að endurkomu Boeing 737 MAX“
- Telja líklegt að 737 MAX muni byrja að fljúga á ný í mars eftir áramót
Dennis Muilenberg, framkvæmdarstjóri Boeing
Níu mánuðir verða bráðum liðnir frá því að Boeing 737 MAX þoturnar voru kyrrsettar í mars á þessu ári en enn er ekki komin nein dagsetning varðandi hvenær þær geta farið að fljúga aftur.
„Alþjóðleg samstaða er lykillinn að því að Boeing 737MAX þoturnar geti hafi sig til flugs á ný. Ef við
erum ekki samstíga núna um að vinna að því að koma vélunum í loftið þá getum við séð fram á allt
aðra hlið sem gæti komið upp sem engin af okkur vill sjá“, sagði Dennis Muilenburg, framkvæmdarstjóri
Boeing, á blaðamannafundi í Seattle.
Muilenburg vill ekki gefa upp neina dagsetningu varðandi hvenær von er á því að Boeing 737 MAX
fari að fljúga aftur en tekur fram að mögulega verði það í mars á næsta ári.
Fjörutíu og tvær Boeing 737 MAX þotur eru framleiddar
í hverjum mánuði og fara allar vélarnar í geymslu
Framkvæmdarstjórinn segist fullviss um að þær breytingar sem gerðar hafa verið bæði á hugbúnaði
á MCAS-kerfi vélanna auk annarra hluta eigi eftir að fullnægja kröfum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA)
og nefndar sem kallast Joint Operations Evaluation Board, sem sett var saman í sérstökum tilgangi til þess að gera úttekt á Boeing 737 MAX
eftir flugslysin tvö sem áttu sér stað í vor og haustið 2018.
Tilraunarflugmaðurinn Craig Bomben, sem flaug fyrsta tilraunaflugið með Boeing 737 MAX árið 2016, segir
að búið sé endurhanna áfallshornsskynjara vélanna með þeim hætti að þeir verða tveir og ef mismunur
milli áfallshornanna, sem þeir skynja, verður meira en 5,5 gráður, mun MCAS kerfið ekki fara í gang.
Boeing hefur að undanförnu framleitt 42 Boeing 737 MAX þotur á mánuði sem öllum hefur verið komið
fyrir á geymslusvæðum í Moses Lake í Washington-ríki og í San Antonio í Texas en öll svæði eru orðin
full á Seattle-svæðinu þar sem vélarnar eru framleiddar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.