flugfréttir

Wizz Air stofnar lágfargjaldafélag í Abu Dhabi

- Wizz Air Abu Dhabi mun hefja starfsemi sína á næsta ári

12. desember 2019

|

Frétt skrifuð kl. 12:01

Wizz Air Abu Dhabi mun hefja starfsemi sína seinni hluta næsta árs í Sameinuðu arabísku furstadæmunum

Wizz Air ætlar sér að stofna sérstakt lágfargjaldaflugfélag í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í samstarfi við stjórnvöld þar í landi en félagið verður annað tveggja flugfélaga sem eru að líta dagsins ljóss í furstadæmunum.

Í tilkynningu frá stjórnvöldum í Abu Dhabi segir að nýja flugfélagið muni hefja starfsemi sína á öðrum árshelmingi næsta árs og á flotinn að samanstanda að mestu leyti af Airbus A321neo þotum.

Wizz Air segir að nýja dótturfélagið eigi að fljúga þær flugleiðir þar sem mikil eftirspurn er eftir flugsætum og mun félagið fljúga m.a. til Evrópu, Miðausturlanda og til Afríku.

Tímabundið nafn á flugfélaginu er Wizz Air Abu Dhabi en ekki er enn ákveðið hvort að það verði nafn félagsins eða hvort annað nafn verður fundið.

Jozef Varadi, framkvæmdarstjóri Wizz Air, segir að meðal fyrirtækja sem koma að fjármögnun nýja flugfélagsins sé Abu Dhabi Development Holding Company sem hann segir að hafi mjög mikla reynslu af markaðnum í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Varadi segir að hann sjái fram á að Wizz Air Abu Dhabi verði mjög öflugur „leikmaður“ á svæðinu enda hefur mikill ferðamannastraumur verið til Sameinuðu arabísku furstadæmana undanfarin ár og ferðamönnum fjölgað sem sækja heim bæði Dubai og Abu Dhabi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga