flugfréttir

Íhuga að stöðva framleiðsluna á 737 MAX í Renton

- Stjórn Boeing á tveggja daga fundi um breytingar á framleiðslunni

16. desember 2019

|

Frétt skrifuð kl. 09:18

Frá verksmiðjum Boeing í Renton þar sem Boeing 737 er smíðuð

Svo gæti farið að Boeing muni grípa til þess ráðs að loka tímabundið verksmiðjum sínum í Renton og stöðva framleiðslu á Boeing 737 MAX þotunni samkvæmt frétt sem dagblaðið The Seattle Times birti í gærkvöldi.

Haft er eftir heimildarmanni, sem er kunnugur málinu, að Boeing sé að íhuga að gera hlé á samsetningu á fleiri Boeing 737 MAX þotum eftir að bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) tilkynntu rétt fyrir helgi að MAX þoturnar myndu ekki fá flughæfnisvottun á ný á þessu ári og sé ekki von á að vottun verði gefin út fyrr en árið 2020.

Stjórn Boeing hélt sérstakan fund í gær (sunnudag) í Chicago sem mun einnig standa yfir í dag og gæti verið von á tilkynningu frá flugvélaframleiðandnum þess efnis að verksmiðjunum í Renton verði lokað tímabundið og framleiðsluáætlunin endurskoðuð.

Svo gæti farið að Boeing myni tilkynna í dag um tímabundna lokun á verksmiðjunum í Renton

Samkvæmt aðila, sem er kunnugur málinu, þá þykir líklegast að Boeing muni tilkynna um að framleiðslan í Renton verði stöðvuð í stað þess að tilkynnt verði um að draga úr framleiðslunni og framleiða færri eintök í mánuði.

Boeing hafði áður gefið í skyn að ef framleiðandinn fengi ekki tilkynningu fyrir árslok frá FAA þess efnis að von er á vottun fyrir Boeing 737 MAX að þá gæti farið svo að framleiðslan myndi stöðvast.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga