flugfréttir
Hóta því að segja upp allt að 100 flugmönnum
- Samdráttur og verkfallsagerðir herja á rekstur Jetstar í Ástralíu
Félagið þurfti um helgina að fella niður um 90 flugferðir vegna verkfallsaðgerða
Svo gæti farið að allt að 100 flugmenn hjá ástralska flugfélaginu Jetstar eigi eftir að yfirgefa félagið vegna uppsagna og deilna um launakjör.
Jetstar hefur lýst því yfir að félagið ætli sér að draga saman seglin með því að selja þrjár Dreamliner-þotur
af gerðinni Boeing 787-8 en með því munu um 50 flugmenn missa vinnuna.
Á sama tíma hafa flugmenn félagsins staðið í baráttu um bættari kjör og segir félagið að flugmenn séu
að fara fram á allt að 15% kauphækkun en félag ástralska atvinnuflugmanna segir að kröfur þeirra
um launahækkun sé ekki svo há.
Sagt er að Jetstar hafi hótað því að segja upp allt að 50 flugmönnum vegna ágreinings
um launakröfur í kjarabaráttunni sem bætist við þá flugmenn sem félagið ætlar sér að segja upp
í tengslum við fækkun Dreamliner-vélanna í flotanum.
Jetstar tilkynnti í dag um að félagið ætli sér að fella niður um 800 flugferðir í innanlandsflugi í Ástralíu
í janúar sem samsvarar um 10% af öllum þeim flugferðum sem félagið hefur áætlað í þeim mánuði.
Jetstar þurfti að fella niður 90 áætlunarflug um helgina vegna verkfallsaðgerða flugmanna auk þess sem flugvallarstarfsmenn, hlaðmenn og fleiri lögðu einnig niður
störf sín með hléum um helgina.
Fram kemur að töluverður samdráttur hefur orðið á eftirspurn en flugsætum í Ástralíu meðal
lágfargjaldafélaga og segir Jetstar að mikill taprekstur sé orðin á rekstrinum og sé félagið að fljúga margar flugferðir sem varla koma út á sléttu og því hagnaðurinn af þeim nánast engin.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.