flugfréttir

Framleiðsla á Boeing 737 MAX stöðvast í byrjun janúar

- Mjög slæm áhrif fyrir Boeing ef stöðvunin dregst á langinn inn á nýja árið

17. desember 2019

|

Frétt skrifuð kl. 07:37

Framleiðsla á Boeing 737 MAX mun stöðvast strax um áramótin og er ekki vitað hvenær framleiðslan hefst á ný

Boeing hefur staðfest að framleiðsla á Boeing 737 MAX þotunum í verksmiðjunum í Renton verður stöðvuð tímabunduð en flugvélaframleiðandinn bandaríski tilkynnti um fyrirhugaða framleiðslustöðvun í gærkvöldi.

Hlé verður gert á samsetning á Boeing 737 MAX strax í janúar og er ekki vitað hvenær framleiðslan mun halda áfram að nýju en talið er að það fari eftir hversu langan tíma það mun taka að fá flughæfnisvottun útgefna að nýju sem mun þá aflétta kyrrsetningu vélanna.

„Við höfum lýst því yfir áður að við munu endurskoða framleiðsluáætlun okkar ef kyrrsetningin dregst á langinn. Niðurstaðan að þessu sinni er sú að við höfum ákveðið að setja í forgang að undirbúa afhendingar á þeim flugvélum sem eru í geymslu og hætta að framleiða fleiri þotur tímabundið strax í byrjun næsta mánaðar“, segir í yfirlýsingu sem Boeing sendi frá sér í gærkvöldi.

Þá kemur fram að ekki mun koma til uppsagna þótt að framleiðslan á Boeing 737 MAX muni stöðvast en mögulega verða starfsmenn færðir til og úthlutað starfi annarsstaðar á Seattle-svæðinu.

Frá samsetningarsalnum í Renton þar sem Boeing 737 MAX er framleidd

Flugsérfræðingurinn Michel Merluzeau hjá ráðgjafarfyrirtækinu AIR segir að Boeing gæti „jafnað sig“ á þessari stöðu ef MAX-þoturnar fá flughæfnisvottun og fara að fljúga fljótlega eftir áramót en ef það dregst lengra inn í árið 2020 gæti skaðinn versnað til muna fyrir Boeing.

Boeing segir að þessar aðgerðir koma til með að valda sem minnstri röskun á framleiðsluna og á aðra birgja til lengri tíma litið en ef framleiðslan fer ekki fljótlega aftur af stað mun það hafa slæm áhrif fyrir önnur fyrirtæki á borð við CFM International sem framleiðir hreyflana fyrir Boeing 737 MAX og Spirit AeroSystems sem framleiðir skrokkinn auk íhluta.

Yfir 400 eintök af Boeing 737 MAX þotum hafa safnast saman á nokkrum stöðum í Bandaríkjunum sem bíða þess að verða afhentar en bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa enn ekki séð ástæðu til þess að gefa út vottun fyrir þoturnar þar sem erfiðlega gengur að ganga úr skugga um að uppfærsla Boeing á svokölluðu MCAS-kerfi sé það örugg að hægt sé að útiloka að slysin tvö endurtaki sig aftur.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga