flugfréttir
Air France staðfestir pöntun í 60 Airbus A220 þotur
Tölvugerð mynd af Airbus A220 í litum Air France
Air France-KLM hefur staðfest pöntun í sextíu farþegaþotur af gerðinni Airbus A220 sem áður voru framleiddar undir nafninu CSeries hjá Bombardier.
Fram kemur að þoturnar munu fara í flota Air France en samkomulag um pöntunina var undirritað í júlí
á þessu ári en Air France stefnir að því að endurnýja flugflotann er kemur að meðalstórum flugvélum.
Air France hefur yfir 110 þotur í flotanum af gerðinni Airbus A318, A319, A320 og Airbus A321 sem margar hverjar eru komnar vel til ára sinna og er meðalaldur þeirra véla um 18
ár og margar orðnar yfir 25 ára gamlar.
„Það gleður okkur að sjá það traust sem Air France hefur á Airbus A220 þotunni og er um að ræða stórt
skref í átt að nýstárlegri flugflota“, segir í tilkynningu frá Airbus.
Air France verður þá stærsti viðskiptavinurinn er kemur að A220 en í dag er airBaltic stærsti evrópski
viðskiptavinurinn með yfir 20 þotur í flotanum af gerðinni Airbus A220-300.
Airbus A220 er eina farþegaþotan á markaðnum sem var sérstaklega hönnuð til þess að taka frá 100 til 150 farþega
og kemur hún með sparneytni og hagkvæmni sem á sér enga hliðstæðu í sama flokki og býr yfir þægindum
fyrir farþega á borð við breiðþotu með nægt rými.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.