flugfréttir
17 ára stúlka gerði tilraun til að stela King Air 200 flugvél
- Tókst að setja annan hreyfilinn í gang en klessti á kant við byggingu
King Air 200 flugvélin snérist í nokkra hringi eftir að stúlkan ræsti annan hreyfilinn og klessti á flugskýli
Lögreglan í Fresno í Kaliforníu fékk í gær undarlegt útkall þegar tilkynnt var um að unglingsstúlka hafði tekist að fara um borð í flugvél af gerðinni Beechcraft King Air 200 á flugvellinum í bænum og gert tilraun til þess að stela vélinni og fljúga á brott.
Stúlkunni tókst með einhverjum hætti að starta öðrum hreyfli vélarinnar en við það tók flugvélin á rás og snerist í hring
þar til að vélin fór í gegnum grindverk og staðnæmdist við steypukant nálægt byggingu á flugvellinum.
Samkvæmt fréttum vestanhafs þá klifraði stúlkan yfir grindverk á Fresno Yosemite flugvellinum og gekk rakleiðis í
átt að King Air 200 flugvél, fór um borð og náði að starta öðrum mótornum.
Stúlkan sat í öðru flugmannssætinu þegar lögreglan kom um borð og var hún með heyrnartól á höfðinu
Er lögreglan mætti á vettvang sat stúlkan enn í öðru flugmannssætinu í stjórnklefa vélarinnar og var hún með heyrnartólin á höfðinu. Stúlkan var töluvert ringluð og var ekki samvinnuþýð er lögregla fjarlægði hana frá borði.
Ekki er vitað hvað stúlkunni gekk til en fram kemur að hún sé ekki með flugmannsskírteini og hafi enga kunnáttu í að fljúga og er því ekki vitað hvernig henni tókst að setja hreyfilinn í gang.
Eins og sjá má er flugvélin töluvert illa farin en engan sakaði, hvorki stúlkuna né aðra á flugvallarsvæðinu
Einn aðili, sem segist þekkja til málsins sem skrifaði ummæli
við erlenda frétt á Facebook í gær, segir að stúlkan hafi nokkrum sinnum verið farþegi í flugvél sömu gerðar og hafi hún líklega fylgst með ferlinu er mótornum er startað.
Móðir stúlkunnar, sagði í samtali við fjölmiðla í Kaliforníu, að stúlkan hefði flúið að heiman kvöldið áður og hafði hún
ekkert heyrt í henni. Móðurin skilur ekki hvernig dóttirin tókst athæfið þar sem hún kann ekki einu sinni að keyra bíl
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.