flugfréttir
Fly Jamaica sækir um gjaldþrotavernd
Boeing 757-200 þotan sem Fly Jamaica Airways hafði í flota sínum
Flugfélagið Fly Jamaica Airways hefur sótt um gjaldþrotavernd á meðan félagið reynir að endurskipuleggja reksturinn en félagið hefur ekki flogið neitt áætlunarflug frá því í mars á þessu ári.
Félagið ákvað að sækja um gjaldþrotavernd eftir að hópur fjárfesta tókst ekki að festa kaup á félaginu
en til stóð að koma rekstrinum aftur á fót í haust.
Fly Jamaica Airways hætti öllum flugrekstri þann 31. mars í vor er eina flugvélin í flota félagins, sem var af
gerðinni Boeing 757-200, varð fyrir skemmdum er hún fór út af flugbraut á flugvellinum í Georgetown í Guyana
í Suður-Ameríku.
Félagið hefur 30 daga til þess að setja fram nýja rekstaráætlun og kynna hana fyrir lánadrottnum sem munu
í framhaldinu ákveða hvort þeir séu reiðubúnir að gefa félaginu annað tækifæri eða hafnað rekstaráætluninni.
Flugfélagið skuldar alls 260 lánadrottnum upphæð upp á 2.7 milljarða króna en fram kemur að listinn sé ekki
tæmandi og skuldar félagið fleiri aðilum.
Samkeppnin er þó hörð þar sem mörg flugfélög eru á Jamaíka og má meðal annars nefna Jam Air Express, Knightflight Airways, Air Jamaica, International Airlink og Caribbean Airlines.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.