flugfréttir
Leigja Airbus A320 til að fylla í skarð Boeing 737 MAX
Boeing 737 MAX þota LOT Polish Airlines
Pólska flugfélagið LOT Polish Airlines mun taka á leigu fjórar Airbus A320 þotur á næstunni til að nota í leiðarkerfinu á meðan á kyrrsetningu Boeing 737 MAX vélanna stendur yfir.
Rekstur LOT Polish Airlines hefur raskast töluvert þar sem félagið hefur ekki geta notað Boeing 737 MAX þoturnar
en félagið var komið með fimm MAX flugvélar í flotann áður en vélarnar voru kyrrsettar.
Airbus A320 þoturnar eru teknar á leigu frá Avion Express í Litháen og mun félagið byrja að nota fyrstu tvær A320 þoturnar þann 14. janúar eftir áramót en í febrúar munu tvær til viðbótar bætast við í flotann og verða þær
í rekstri félagsins fram í enda maímánaðar.
LOT ætti að vera komið með 12 Boeing 737 MAX þotur í flotann í dag en sjö þotur til viðbótar hafa þegar verið
smíðaðar sem bíða afhendingar á geymslusvæði í Bandaríkjunum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.